Jónsmessunæturdraumur (2025)

Back

by William Shakespeare
Directed by María Ellingsen and Magnús Thorlacius
Dramaturgy by Eyja Sigríður Gunnlaugsdóttir

Tjarnarbíó, Reykjavík (2025)

 
 

„Ef satt skal segja þá eru skynsemi og ást ekki mikið í samfloti núorðið.“

Ungur og spennandi leikhópur tekur yfir Tjarnarbíó í haust og setur upp ástsælasta gamanleikrit allra tíma; Jónsmessunæturdraum! Djúpt inn í töfraskógi týnast fjórir ungir elskhugar á flótta og flækjast inn í stríð konungs og drottningar álfanna ásamt leikhóp handverksmanna sem á sér einskis ills von. Tungsljósið og döggin í bland við hugvíkkandi töfrasafa álfana snúa öllu á hvolf þessa örlagaríku Jónsmessunótt. Leikritið virkar létt og einfalt á yfirborðinu en undir niðri er það marglaga og djarft. Í Jónsmessunæturdraumi takast á draum- sem og martraðakenndar hliðar ástarinnar, þrá og afbrýðisemi, kúgun og undirgefni, stjórn og hömluleysi. Á einni sumarnóttu ferðumst við frá ramma borgarinnar út í frelsi villtrar náttúrunnar, frá hatri til ástar, frá svefni til vöku. Leyfðu grípandi gamanleik Shakespeares að töfra þig burt úr drunga haustsins yfir í draumkennda Jónsmessunóttina.

★★★★
“Iðandi skemmtileg, hrein og bein, sett fram af heilum hug og góðum..” -
Þ.T., Morgunblaðið

”Metnaðurinn sem settur hefur verið í sýninguna fer ekki fram hjá nokkrum leikhúsgesti” - K.Á., RÚV

“Þetta er ærslafullur ævintrýraleikur sem fer ungum leikhópi afar vel - með allri sinni hamslausu ást og greddu, kjánaskap og mannlega breyskleika.” - S.A., Tímarit Máls og Menningar

 
 

Listrænir aðstandendur:

Höfundur: William Shakespeare
Þýðing: Þórarinn Eldjárn
Leikstjórn: María Ellingsen og Magnús Thorlacius
Aðstoðarleikstjóri og dramatúrg: Eyja Gunnlaugsdóttir
Búningar og leikmyndahönnun: Íris Ólafsdóttir
Sviðshreyfingar: Sóley Ólafsdóttir
Tónlist og hljóðmynd: Ronja Jóhannsdóttir
Gervi: Ásta Hafþórsdóttir

Flytjendur:

Snikki/Egeifur: Björk Guðmundsdóttir
Bossi: Fjölnir Gíslason
Hippolíta/Títanía: Heiðdís Hlynsdóttir
Þeseifur/Óberon: Jón Gunnar Vopnfjörð Ingólfsson
Demetríus: Killian G. E. Briansson
Lýsander: Vilberg Andri Pálsson
Helena: Kristín Þorsteinsdóttir
Smiddi: Níels Thibaud Girerd
Belgi: Óskar Snorri Óskarsson
Búkki: Rakel Ýr Stefánsdóttir
Hermía: Sigríður Halla Eiríksdóttir
Álfur: Sóley Ólafsdóttir

Framleiðsla:

Framleiðandi: Silfurskeiðin, leikfélag
Framkvæmdastjórn: Kristín Þorsteinsdóttir og Sigríður Halla Eiríksdóttir
Aðstoð við framleiðslu: Móheiður Guðmundsdóttir og Ólafur Kristinn Jónsson
Plakat og grafík: Katrín Hersisdóttir
Ljósmyndir: Christopher Lund

Sérstakar þakkir:

Atli Þráinsson, Auður Björnsdóttir, Björn Orri Eiríksson, Dóra Bjarkadóttir, Eimskip, Eiríkur Kristinsson, Elís Gíslason, Eykt, Hólmfríður Hafliðadóttir, Kristinn Óli Haraldsson, Magnús Norddahl, Orri Hauksson, Snorri Freyr Hilmarsson, Sportís, Te og kaffi, Topplagnir, Tóma Rýmið, Tómas J Þorsteinsson, Þorsteinn J., Þórarinn Eldjárn