Fundurinn (2022)
by Starkaður Pétursson
Directed by Magnús Thorlacius
„Nú ætla ég að segja þér þetta sem vinur,
þinn besti vinur, djöfull geturðu talað mikið.“
Þann 11. og 12. október árið 1986 var haldinn Leiðtogafundurinn í Höfða en þar funduðu Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna og Mikhaíl Gorbatsjev, leiðtogi Sovíetríkjanna um undirbúning á takmörkun á vígbúnaði og deilu- og mannréttindamál. Eðli málsins samkvæmt fylgdist allur heimurinn með fundinum, enda stendur Kalda stríðið sem hæst, og Ísland skyndilega orðið á allra vörum og undir smásjá jarðarbúa.
Margt er enn á huldu hvað það var sem fór nákvæmlega fram á fundinum. Hverjir voru í húsinu? Hvernig var andrúmsloftið? Og mikilvægast: Gerðist eitthvað annað innanhúss en einungis fundurinn milli Reagan og Gorbatsjev?
Fundurinn (The Summit) is a comedy about an unexpected friendship at fateful times. The only Icelanders at Höfði wait for their services to be needed while the meeting of the century happens in a room downstairs. The piece was originally conceived as Starkaður’s solo project project in IUA’s acting program.
„Ég er smá rasandi yfir því hversu gott þetta var. Persónusköpunin, samtölin og leikstíllinn voru á einhverju gæðastigi sem ég hreinlega hef ekki séð áður. Upplausnin í textanum […] með súrrealískum töktum voru algjört sælgæti, trúverðugleikinn og þróun í sambandinu milli húsvarðar og löggu, framvindan. Allt gjörsamlega gegnum þakið. […] Finnst þetta stykki eiga risastórt erindi - vil sjá þetta á stærri fjölum með fleiri áhorfendum.” -Guðrún Sóley, fjölmiðlakona, Kastljós/Menningin.
Concept:
Starkaður Pétursson
Director:
Magnús Thorlacius
Actors and devisors:
Starkaður Pétursson, Kolbeinn Sveinsson, Jón Bjarni Ísaksson.
Scenography:
Pétur Gautur
Special thanks:
Foreldrar Magnúsar, amma og afi Starka, Mamma Kolbeins, Egill Ingibergsson, Edda Ólafsdóttir, Jürgen Klopp, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, RÚV, Bogi Ágústsson, Reykjavíkurborg, Mímir Bjarki.